Haustferð í Langadal 7-9. október
Þórsmörkin tók fagnandi á móti fyrstu Tófturunm, með einstaklega fallegri kvöldbirtu, enda miklir höfðingjar þar á ferð. Seinna um kvöldið böðuðu stjörnunar sig í eindæma norðurljósadýrð. Þetta var föstudagskvöldið. Eftir þetta sást hvorki til sólar, né stjarna. Þetta var vissulega vinnuhelgi.
Krossá var ekki helsti farartálminn að þessu sinni, heldur var það Hvanná sem hafði grafið sig niður í þröngan farveg og áttu ýmsir bílstjórar erfitt með að finna réttu leiðina yfir, en allir komust þeir þó.
Eitt af fyrstu verkefnum tóftara var að búa til nýjan stíg að hluta frá göngubrúnni yfir Krossá inn að Langadal. Stigurinn sem fyrir var, þótti ekki lengur fær fyrir lofthrædda og þungbúna ferðalanga. Stígagerðin tókst með eindæmum vel, enda ekki von á öðru.
Að lokinni stígagerð var farið í að lagfæra og bera í stíga áleiðis inn í Langadal. Þar fóru Unnar og Dassi fremstir í flokki á fjórhjólum. Fjórhjólin fengu mikla athygli hjá ungu kynslóðinni og þurfi að koma upp kerfi til þess að allir fengu að hjálpa til við efnisflutningana og hlutu þau fljótt nafnið Fjörhjól.
Önnur verk sem ynnt af hendi voru: Þrif á Kojukroti, tilfærsla á upplýsingaskilti FÍ við Krossá, Smíðaður skápur utan um gaskúta hjá skálaverði og skemmd þrep fjarlægð svo fátt eitt sé nefnt.
Laugardagskvöldið var síðan haldin Kjötsúpuveisla, þar sem allir gátu étið eins þeir best gátu. Að vísu misstu þrjár ungar tóftarameyjar af matnum, en þar fór betur en á horfðist. En þessar ungu dömur hugðust skoða sig um í Sönghelli seinni part dags, en sennilega voru þær búnar að gleyma hversu slæmt skyggnið er eftir sólsetur.
En nóg um það, allir komu þeir aftur eins og segir í kvæðinu. Allir fóru ánægðir og glaðir heim á sunnudeginum. Ekki var vart við tröllaferðir að þessu sinni og má áætla að aðgerðir frá því um vorið hafi skilað árangri. Möguleiki er þó á því að tröllin hafi ekki enn lagt af stað til byggða, enda tíðin verið góð uppi á fjallabaki þetta haustið og eitthvað var um ferðamenn sem ekki höfðu skilað sér til byggða.

<< Home