Tóftarar

01 febrúar 2007

Dagskrá Þorrablóts Tóftara 2007

Staðarhaldarar hafa gert samning við sérvalinn byrgja um matarinnkaup fyrir þorrablót Tóftara. Þessi heildsali mun einnig sjá um að vera yfirkokkur á blótinu.

Matseðillinn hljómar eftirfarandi.


Staðlaður Þorramatur
Ekta íslensk kjötsúpa
Kjöt í Karrý (fyrir þá sem ekki leggja í Þorramatinn)
Spaghetti Bolognese fyrir yngri kynslóðina


Innkaupinn voru miðuð við tíu tugi og ætti þar af leiðandi duga vel fyrir alla veislugesti. Verðið er 1000 kr. fyrir fullorðinn og 500 fyrir börn yngri en 16 ára.

Gaman væri ef einhverjir sjálfboðaliðar byðu sig fram í pönnuköku- eða vöflubakstur til að hafa með kaffinu seinni part laugardags. Sjálfboðaliðar verða sjálfir að útvega hráefni. Þrjú vöflujárn eru á staðnum, en ekki er vitað um pönnu til pönnukökugerðar.


Aðrir dagskrárliðir fyrir utan matarát eru


Brenna á laugardagskvöldi ef veður leyfir
Þorrabikarkeppni Tóftara í félagsvist. (Takið með ykkur spilastokka)
Skoðaðar gamlar og nýjar myndir. Skjávarpi, sýningarvél og sýningartjald verður á staðnum.
Heimatilbúin skemmtiatriði.
Og annað sem Tófturum dettur í hug.


Búist er við mjög góðri þáttöku og hafa nú þegar nokkrir fyrstu kynslóðar Tóftarar boðað komu sína.

Hlökkum til að sjá ykkur öll
Þorrablótsnefndin

1 Comments:

At fimmtudagur, 01 febrúar, 2007, Anonymous Nafnlaus skrifaði...

Önnur atrenna á comment hitt datt út. Sjálfboðaliðar í vöfflubakstur, Birna og Sigga Sig. Ætlum að bjóða Bettý frænku með líka.
Sjáumst hress
Birna og Sigga Sig.

 

Skrifa ummæli

<< Home