Hveravallaferð helgina 2.-4. desember
Árni veðurtóftari er búinn að taka frá veðurstofuhúsið á Hveravöllum helgina 2.-4. desember. Þó svo að ferðin sé auglýst fyrst núna, þá hefur fyrirspurnum ringt inn og hafa menn áhyggjur af plássleysi. Ég er búinn að tala við umsjónarmann skálanna á Hveravöllum og eru þeir báðir lausir. Í veðurstofuhúsinu er pláss fyrir um 20 manns, en einhverjir þurfa að koma með eigin dýnur. Nóttin í skálanum kostar 1.600 kr., en Veðurtóftarinn er búinn að ganga frá greiðslu fyrir veðurstofuhúsið.
Ég legg til að menn sendi mér póst eða hringi í mig og skrái sig í ferðina, þannig að ég geti pantað nógu mörg rúm í skálanum.
Það verður boðið uppá mörg skemmtiatriði eins og t.d. leðjuslag og blautbolakeppni.
Ég vona að sem flestir sjái sér fært að mæta og taka þátt í keppninni.
Kveðja
Helgi
símar: 551 6112 - 896 9718
helgi@hagstofa.is

2 Comments:
Ég er búinn að taka frá pláss í öðrum skálanum fyrir 20 manns.
Tilkynni ferðatilhögun seinna.
Helgi
Fyrir þá sem ætla að koma:
Er stemming fyrir því að hafa sameiginlega kvöldmáltíð á laugardagskvöldinu?
Vinsamlegast látið ljós ykkar skína hér, eða sendið mér póst ef ykkur líkar það betur.
Skrifa ummæli
<< Home