Tóftarar

26 desember 2005

Sumarleyfisferð Tóftara 2006

Farið verður í Reykjafjörð á Ströndum 10.-14. júlí, sem er mánudagur til föstudags.
Siglt verður frá Norðurfirði, en siglingin tekur klukkutíma og korter og verður farið á nýjum 30 manna bát og farnar eins margar ferðir og þarf til að flytja alla, þannig að það eru engar fjöldatakmarkanir á ferðinni.
Auk þessara ferða sem farnar verða fyrir okkur verður báturinn í áætlanasiglingum þrisvar í viku, þannig að ef einhver þarf að fara fyrr eða koma seinna ætti það að vera hægt að einhverju marki.
Viðmiðunarverð verður að hámarki 15.000,- á fullorðinn, minna fyrir börn. Innifalið í því er siglingin, tjaldstæði og amk ein sameiginleg máltíð.
Á svæðinu er ótakmarkaður aðgangur að sundlaug, frábærar gönguleiðir í nágrenninu þar á meðal niður í fjöru og að Drangajökli og ýmislegt fleira.
Örfá pláss eru í skála sem möguleiki er að panta. Fyrstur kemur fyrstur fær.
Nánari upplýsingar verða birtar hérna á vefnum eftir því sem hlutirnir skýrast.
Skráning fer fram með því að senda póst á netfangið toftarar@hotmail.com fyrir 1. febrúar.

14 desember 2005

Skjaldarmerki Tóftara - hugmyndasamkeppni

Kæru Tóftarar,

Skjaldarmerki eða "logo" er eitt af því sem þarf að huga að þegar stórkostleg félög - eins og Tóftarar - verða að veruleika.

En sá galli er á gjöf Njarðar að ekkert slíkt skjaldarmerki er til. Þess vegna var ákveðið að efna til hönnunarsamkeppni til að fá hið eina sanna merki. Allir Tóftarar, jafnt ungir sem ungir í anda, eru beðnir að leggja sitt af mörkum og koma með tillögur sínar í jólaboðið.

Teikningarnar skulu vera merktar með leyninafni og þeim skilað á jólaboðinu í þar til gerðan kassa. Umsjónartóftarar munu sjá um að hengja þessi listaverk upp á vegg. Síðan fer fram leynileg kosning þar sem menn skrifa leyninafn listamannsins á miða. Úrslitin verða kynnt að lokinni tíu keppninni.

Sigurvegarinn hlýtur nafnbótina "Merkistóftari" og hafa menn látið lífið fyrir minna.

Nánari fyrirspurnum svara þær Sigga Garðars eða Evelyn.

Látið nú ljós ykkar skína !