Þorrablót 2007
Þá er komið að því að halda hefðinni við. Þorrablótsnefnd Tóftara hefur ákveðið að halda hið árlega Tóftarablót þann 2.-4. febrúar. Notast verður við sama húsakost og í fyrra. Fyrir þá sem ekki muna eftir síðasta blóti þá var það haldið í hinum trjálausa Hólaskógi rétt norðan við Búrfell í Þjórsárdal. Húsið tekur um 80 manns í gistingu og eru tveir matsalir. Malbikaður vegur er nær alla leiðina og sé ófært síðustu metrana munu vaskir Jeppatóftarar vakta afleggjarann og flytja súrmatsóða Tóftara síðasta spölinn að blótstað.
Blóttollur mun vera 1000 kr. nóttin fyrir hvern þann Tóftara sem eigi hefur lifað skemur er nemur tveimur tugum vetra (fyrir unglinga og útlendinga: 20 ára og eldri þurfa að borga blóttoll). Innifalið er eldunar-, böðunar- og gistiaðstaða.
Blótið verður með svipuðu sniði og í fyrra, þó eru hugmyndir á nýjungum vel þegnar. Ýmislegt verður á boðstólnum fyrir yngri kynslóðina. Þó munu veðurguðirnir stýra úrvalinu. Hin geysivinsæla föndurstund undir leiðsögn þolinmæðra uppeldisfræðinga verður á sínum stað og mun blótsnefndin útvega nauðsynlegan varning og verkfæri. Ef veður leyfir munu staðarhaldarar útbúa skautasvell og leggja gönguskíðabraut sé nauðsynlegur jarðvegur til staðar. Eins verður reynt að hafa eitthvað fyrir alla aldurshópa og eru eldri Tóftarar hvattir sérstaklega til að mæta.
Vinsælt væri ef sem flestar fjölskyldur kæmu með sitt eigið skemmtiatriði fyrir kvöldvökuna, sem heppnaðist með eindæmum vel á síðasta ári. Áætlað er þó að ró færist ekki yfir blótstað fyrr en upp úr miðnætti. Hláturinn lengir lífið.
Eitthvað fór lítið fyrir dansleik á síðasta blóti, en mun skortur á tónlist átt þar einhverja sök frekar en fótafimi Tóftara eins og sjá mátti i brúðkaupsveislu Hörpu og Auðuns. Stefnt er á að bæta úr þessu og eru sjálfboðaliðar beðnir um að mæta með sína tónlist.
Skráning fer fram hjá Siggu Garðars í síma: 8483538 eða hjá Evelyn í síma 5516112.
Benda má á að staðarhaldarnir eru mun stæltari og kynþokkafyllri en í fyrra. Reyna má greiða með blíðu, en óvíst er hvort gjaldið hækki ekki bara við það. Allavega verður posi á staðnum.
Hlökkum til að sjá sem flesta!
Sjálfskipaða Þorrablótsnefndin
